Hausttónleikar Kórs HallgrímskirkjuMessa og upphaf barnastarfs
Dagsetning
06.september 2026 -06.september 2026
Klukkan:
11:00
Sunnudagur 6. september kl. 11:00.
Hvaðan kemur hjálpin?
Messa á fjórtánda sunnudegi eftir þrenningarhátíð
Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Kór Hallgrímskirkju leiða söng.
Organisti er Steinar Logi Helgason.
Skírn fer fram í upphafi messu.
Upphaf barnastarfsins og fyrsti sunnudagaskóli haustsins
Á þessum sunnudegi er fyrsti sunnudagaskóli haustsins og hefst með því barnastarfið í Hallgrímskirkju eftir sumarið. Við hlökkum við til að taka á móti börnum og fjölskyldum eftir gott sumarfrí.
Umsjón með sunnudagaskólanum hafa: Ragnheiður Bjarnadóttir, Rósa Hrönn Árnadóttir og Kristbjörg Katla Hinriksdóttir.
Á miðvikudagsmorgnum á milli kl. 10-12 eru Foreldramorgnar í Hallgrímskirkju. Gengið er inn aftantil.
Æfingar hjá Barnakór Hallgrímskirkju hefjast miðvikudaginn 16. september fyrir börn í 2.-6. bekk. Skráning er í fullum gangi á Abler.io.
Hlökkum við til að taka á móti börnum og fjölskyldum eftir gott sumarfrí.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR